Halló strákar !

Þar sem vel hefur komið í ljós, að þótt stjórnendur íslensku bankana, virðast ekki láta sjá sig, þá lesa þeir greinilega blöðin og netið. Þeir eru því væntanlega  búnir að lesa þessa frétt. Þeir hafa verið duglegir (sérstaklega Kaupþingsmenn) að senda frá sér alls konar yfirlýsingar í tilefni ýmissa frétta. Því geri ég ráð fyrir því  að þeir verði snöggir núna að bregðast við og senda frá sér afsökunarbeiðni. Því svo sannarlega eigum við það skilið. Mér sýnist við uppgjör bankanna að komi berlega í ljós, að þessir menn hafa aldrei hoggið nálægt skynsamlegri ákvörðun í stjórnartíð sinni. Þess vegna eru allir bankarnir í botnlausum skuldum umfram eignir.

Koma svo strákar ! ! !


mbl.is Bankastjórar biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll A. Þorgeirsson

Mér finnst nú bankastjórar eiga það sameiginlegt með flestum pólitíkusum, svo ég tali nú ekki um útrásarvíkinga.........

....að það er dálítið erfitt að biðjast afsökunar og segja af sér. 

Páll A. Þorgeirsson, 12.2.2009 kl. 21:56

2 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Mér þykir þú bjartsýnn Oddur Helgi !!  Hvað fékkst þú í morgunmat ?

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 12.2.2009 kl. 23:30

3 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

og takk fyrir hótelleitarábendinguna,- fengum þetta fína 4rastjörnuhótel ( á vetrartilboði) við Hyde Park ;)

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 12.2.2009 kl. 23:30

4 Smámynd: Oddur Helgi Halldórsson

Sæl Þórhildur . Flott með Hótelið. Skemmtið ykkur vel

Ég er sjálfur að fara 19.-22. febrúar. Verð á Hilton Park Lane. (Við Hyde Park Corner ) Aldrei verið á Hilton í London fyrr, en annars staðar og líkað vel. (Fæ þetta fyrir vildarpunkta)

Oddur Helgi Halldórsson, 12.2.2009 kl. 23:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Oddur Helgi Halldórsson
Oddur Helgi Halldórsson

Akureyringur,
úr Þorpinu,
úr Bótinni. 

Blikksmiður
Iðnrekstrarfræðingur
Bæjarfulltrúi fyrir L-listann á Akureyri.
Þórsari af lífi og sál
Arsenalmaður
Ferrari-fan

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband