Smá sumarfrí

Þessi bloggveröld er tiltölulega ný fyrir mig og ég rétt byrjaður að blogga. Samt vekur það furðu mína hve margar heimsóknir þessi síða mín fær. Ég er ekkert sérlega duglegur að blogga. Ég læt það ráða, að ég blogga, þegar mér finnst ég hafa eitthvað að segja, en ekki af því að það var svo langt síðan ég skrifaði eitthvað síðast. Það er gaman þegar einhver sér ástæðu til að skrifa athugasemd við pislana mína og ég þakka þeim sem það hafa gert.
Nú ætla ég að taka mér smá sumarfrí. Ég ætla að rúlla hringinn í rólegheitum. Það verður auðvitað til þess að gloppóttar heimsóknir verða hingað inn.
Veðrið er svo gott og landið skartar sínu fegursta og þess ætla ég að njóta.   Gleðilegt sumar

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pálmi Gunnarsson

Sæll Oddur Helgi ... má til með að þakka þér fyrir síðast en það var á bæjarstjórnarfundi þar sem Turnarnir tveir voru samþykkir af Sjöllum og taglhnýtingum þeirra í Samfylkingu. Hafðu góða ferð og  heimkomu.

Pálmi Gunnarsson, 6.7.2008 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Oddur Helgi Halldórsson
Oddur Helgi Halldórsson

Akureyringur,
úr Þorpinu,
úr Bótinni. 

Blikksmiður
Iðnrekstrarfræðingur
Bæjarfulltrúi fyrir L-listann á Akureyri.
Þórsari af lífi og sál
Arsenalmaður
Ferrari-fan

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband