29.10.2008 | 16:29
Sammála
Ég er sammála Árna með að Færeyingar eru okkar bestu vinir. Ég er líka sammála með færeysku krónuna og benti á það hér á bloggsíðunni minni 5. okt. að við ættum að semja við þá um upptöku færeysku krónunnar
Árni Johnsen vill færeyska krónu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Oddur ert þú jafn vitlaus og Árni( tæknilegi mistaki)Johnsen,Færeyingar nota danska krónu og hafa gert í nokkur ár
Siggi (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 16:50
sæll Siggi
Það er alltaf álitamál hver er vitlaus og hver ekki. Ég ætla ekki að reyna að þræta fyrir að einhverjum finnist ég vitlaus, en mér finnst það ekki. Ég bendi á eldra blogg, þar stendur. "Færeyska krónan er bundin dönsku krónunni.
Danska krónan er bundin Evrunni." Þannig að ég vissi það og veit að svoleiðis hefur verið lengur en í nokkur ár
Oddur Helgi Halldórsson, 29.10.2008 kl. 17:50
Árni hefur nú bara verið að lesa bloggið þitt,- hann er hermikráka....
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 29.10.2008 kl. 21:14
Árni stal hugmyndinni. Hefur svo sem áður stolið kallinn.
Víðir Benediktsson, 29.10.2008 kl. 22:10
Pældu í því Oddur Helgi að Færeyingar eru vel aflögufærir þrátt fyrir að reiknisfiskifræðingarnir hafi á hverju ári í meira en áratug spáð því að nær allir fiskistofnar við eyjarnar myndu hrynja ef þeir færu ekki "uppbyggingarstarf" og skæru niður líkt og við Íslendingar höfum reynt.
Sigurjón Þórðarson, 3.11.2008 kl. 22:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.